Eygló er harðdugleg og skynsöm

Af þeim störfum sem ég hef kynnst Eygló vinna af samviskusemi, skynsemi og dugnaði er ég viss um að hún mun standa sig vel inná þingi. Þó hún tilheyri þessum arfavitlausa flokk sem Framsókn er og hefur verið þá er það eina von Framsóknar að hennar líkar taki við og fái það traust og umboð til að vinna að hag heildarinnar. Hún má ekki falla í gryfju Sivjar og verða sleikipinni stóru strákanna til að halda völdum, hún verður að fylgja sannfæringu sinni fyrir betri heim og gefa engan afslátt af góðum verkum. Velkomin til nýrra starfa Eygló og gangi þér allt í haginn.
mbl.is Eygló tekur sæti á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband