Bretar og íslenska lofthelgin NEI TAKK

Miðað við framkomu Breta í garð íslendinga undanfarnar vikur er alger firra að láta þá sjá um loftvarnir landsins í desember. Þótt fyrir liggi samningur við Nato um loftvarnir var sá samningur gerður þegar Bretar voru vina og bandalagsþjóð okkar. Það á ekki við lengur. Bretar meðhöndla okkur á sama hátt og alþjóðlega glæpamenn, beita okkur viðurlögum undir sama lagabókstaf og var settur í kjölfar hryðjuverkaárasanna í New York 2001.  Það má vel vera og óskandi að þjóðirnar sættist í náinni framtíð en í augnablikinu og á næstu vikum er það móðgun við íslenska þjóð að við greiðum þeim tugi milljóna fyrir loftvarnir á meðan við snæðum jólasteikina. Það væri eingöngu til að ganga endanlega fram af okkur. Jólasteikin mun ekki bragðast vel með Breskar herflugvélar fljúgandi yfir hausamótunum á okkur. Við berum einfaldlega ekki virðingu fyrir Bretum meðan þeir meðhöndla okkur sem hryðjuverkamenn, það er svo einfalt. Það mun engin gera loftáras á Ísland á jólunum, nýtum þessa peninga sem eiga fara í loftvarnir við Breta og látum mæðrastyrksnefnd hafa það fé, þar eru þeir nauðsynlegir.


mbl.is Ísland í fjárhagslegri herkví Breta?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alcoa kemur engum á óvart

Að Alcoa tilkynni núna að verið sé að athuga hvort álverið verði ekki 346þ tonn í stað 250þ tonna ætti engum að koma á óvart nema sauðsvörtum einfeldningum í lopapeysum. Þessi tilkynning er fyrir löngu tilbúin í undirbúningshóp álversins og tilkynning nr. tvö í röð fjögurra tilkynninga. Fyrsta tilkynning er 250þ tonn. Það halda menn að sé bara eitt lítið sætt álver sem allir geta sætt sig við. 346þ tonn er svona smáviðbót sem þarf bara smámeira af raforku í viðbót... ekkert svakamikið.. en viti menn.. þriðja tilkynningin bíður í skúffunni og hún hljóðar uppá 520-580þ tonn. Sú tilkynning verður fengin að láni hjá Veigu Tinto sem sagði um árið að ný álver væru ekki hagkvæm nema þau framleiddu að minnsta kosti 500þ tonn á ári. Fjórða og sennilega seinasta tilkynning kemur eftir 5-7 ár en hún hljóðar uppá 1200þ tonna ársframleiðslu. Sú stækkun mun verða rökstudd með því að ef ekki verður stækkað verði álverið lagt niður og leggjast við það niður einu 350 láglaunastörfin í sveitinni því allir aðrir verða farnir að vinna meira með huganum við arðbærari störf. Þá verður sveitarstjórnum stillt upp við vegg og hótað með því að 500 fjölskyldur missi viðurværi sitt, fólksflótti verði af svæðinu, skólar munu loka, læknisþjónusta leggjast af og alger örbirgð bíða þúsunda manna..nema þá bara ef Alcoa fær sín 1200þ tonn. Til þess að geta stækkað þarf bara oggulitla virkjun í Jökulsá á Fjöllum sem mun ekki þurfa að fara í umhverfismat vegna flýtimeðferðar hjá nýrri Sif sem tekin verður við ráðuneyti umhverfismála sem mun vilja láta taka eftir sér í karlaklúbbnum eins og forveri sinn í starfi og afgreiðir málið með hraði.

Mín skoðun er sú að við skulum virkja ísland í sátt við þjóðina, við skulum stuðla að fjölbreyttu atvinnulífi í stað þess að leggja öll egg í sömu körfu með samningum til 60 ára og við skulum hugsa ,,strategískt án fordóma" til framtíðar en ekki láta stjórnast af efnahagslægð sem gengur yfir núna í 3 ár.

 


mbl.is Skoða stærra álver á Bakka en áður var áformað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mentor - persónuleg gögn

Í dag gerði ég athugasemd við það að starfsmenn Lækjarskóla í Hafnarfirði nota gögn úr Mentor til að senda allskyns tilkynningar frá hinum ýmsu aðilum til foreldra. Til dæmis var bæjarstjóri Lúðvík með hverfisfund í vikunni, sem er að mínum áliti ekkert annað en pólitískur fundur, en þá brá svo við að starfsmaður Lækjarskóla sendir tölvupóst til allra foreldra í hverfinu til að smala á fund með Lúðvík. Þessu mótmælti ég og óskaði eftir að gögn um mig sem foreldri ættu ekki að vera notuð til að senda út tilkynningar eða auglýsingar um það sem er að gerast í bænum. Í dag bættist svo lögreglan við og misnotaði með sama hætti gögn úr Mentor til að senda kveðju og skilaboð frá lögreglunni.

Þar sem ég kannast ekki við að hafa gefið leyfi til þess að gögn um mig og fjölskylduna sem vistaðar eru í gagnagrunni skólans séu notuð í auglýsinga eða tilkynningarskyni fyrir hverja sem er gerði ég athugasemd við þetta og sendi skólanum. Einnig gerði ég fyrirspurn til Mentor og óskaði eftir að sjá þær reglur sem gilda um meðferð trúnaðarupplýsinga í gagnagrunni skólanna. Þar sem skólinn hefur ekki svarað erindi mínu kvartaði ég til Perónsuverndar vegna málsins. Niðurstaða vegna þessa mun ég birta hér á vefnum.


Virkt lýðræði, nú sem fyrr

DSC_1751-mblEin þekktasta yfirlýsing lýðræðis í landinu er án efa ,,Vér mótmælum allir“ sem kennd er við Jón Sigurðsson en sem þingmenn okkar mæltu árið 1851 vegna lögleysu og yfirgangs dana í okkar garð. Álíka yfirlýsingar voru viðhafðar á pöllum ráðhússins í morgun þegar ungliðar félagshyggjuaflanna sættu sig ekki við að 100 daga valdabrölt Dags og Svandísar með fulltingi Björns Inga rynni út í sandinn. Ekki var um lögleysu eða yfirgang að ræða að þessu sinni heldur fullkomlega eðlileg vinnubrögð lýðræðisins. Niðurstöður lýðræðislegra kosninga veittu borgarfulltrúum með 52% atkvæða til að vinna að þeim málefnum sem þeim fannst brýnast að vinna að og voru kosin til.   Það er beinlínis ánægjulegt að verða vitni að því að lýðræðið er virkt í okkar samfélagi  og að kjörnir fulltrúar hafi nauðsynlegt aðhald og viti að fylgst er með verkefnum þeirra og ákvörðunum. Mótmælin á pöllunum í morgun eru því virðingarverð því þau voru friðsamleg og málefnaleg. Við höfum einfaldlega rétt á að lýsa skoðunum okkar og þó að fundarsköp hafi verið brotin, hafa þau minna vægi en mikilvægi þess að skoðanir fólks komist á framfæri.  Fögnum því að lýðræðið er virkt og óskum jafnframt nýjum réttkjörnum borgarstjórnarmeirihluta velfarnaðar í starfi.

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband